Þegar kvef- og inflúensutímabilið nálgast er mikilvægt að gera ráðstafanir til að halda heilsu. Með því að fylgja nokkrum einföldum ráðum má draga úr hættu á inflúensu og öðrum sýkingum. Hér eru nokkur ráð til að koma í veg fyrir veikindi.
Handþvottur
- Þvoðu hendur reglulega: Handþvottur með sápu og vatni í að minnsta kosti 20 sekúndur getur fjarlægt margar bakteríur og veirur¹.
- Notaðu handspritt: Ef sápa og vatn er ekki til staðar má nota handspritt með að minnsta kosti 60% alkóhóli¹.
Borðaðu holla og fjölbreytta fæðu
- Ávextir og grænmeti: Er fæða sem er rík af vítamínum, eins og C- og E-vítamíni sem getur styrkt ónæmiskerfið².
- Góðgerlar: Jógúrt og gerjuð matvæli geta bætt þarmaflóru og þannig styrkt ónæmiskerfið³.
- Drekktu nægan vökva: Drekktu vel af vatni til að líkaminn starfi sem best⁴.
Fáðu nægan svefn
- Þú skalt stefna að 7-9 klst. nætursvefni: Góður svefn getur styrkt ónæmiskerfið⁵.
- Hafðu ákveðna svefnrútínu: Farðu í rúmið og vaknaðu á sama tíma daglega fyrir aukin svefngæði⁵.
Stundaðu hreyfingu
- Hreyfðu þig reglulega: Hófleg hreyfing getur styrkt ónæmiskerfið⁶.
- Forðastu of mikla áreynslu: Þú ættir ekki að stunda líkamsrækt þegar þú ert með kvef eða hálsbólgu því þá geta einkennin versnað⁷.
Náðu stjórn á streitu
- Slökunartækni: Hugleiðsla og djúpöndun getur dregið úr streitu og styrkt ónæmiskerfið⁸.
- Félagsleg tengsl: Að umgangast vini og fjölskyldu getur bætt líðan og minnkað streitu⁹.
Bólusetning
- Fáðu inflúensubólusetningu: Hún getur verndar gegn algengustu inflúensustofnunum¹⁰.
- Ráðfærðu þig við lækni: Spurðu um önnur bóluefni sem gætu hentað þér, sérstaklega ef þú ert í áhættuhópi¹⁰.
Forðastu náin samskipti við veikt fólk
- Haltu fjarlægð: Reyndu að forðast fólk sem er með kvef- eða inflúensueinkenni¹¹.
- Vertu heima ef þú ert veik(ur): Til að forðast að smita aðra, þar sem kvef getur verið smitandi á meðan veikindi vara¹¹.
Þvoðu og sótthreinsaðu yfirborðsfleti
- Notaðu sótthreinsiefni: Hreinsaðu fleti eins og hurðarhúna og síma reglulega til að minnka útbreiðslu veira¹².
- Fylgdu leiðbeiningum: Lestu og fylgdu leiðbeiningum á hreingerningarvörum til að tryggja áhrifaríka sótthreinsun¹².
Notaðu ColdZyme® fyrirbyggjandi
Að hafa ColdZyme® við höndina getur verið áhrifarík leið til að fyrirbyggja kvefeinkenni og vernda gegn veirum í efri hluta öndunarfæra.
- Verkun ColdZyme®: ColdZyme® er munnúði sem myndar verndandi hjúp í slímhúð í munnholi og hálsi, sem getur dregið úr hættu á að veirur taki sér bólfestu og valdi sýkingu.
- Notaðu ColdZyme® við fyrstu einkenni kvefs: Með því að nota ColdZyme® um leið og fyrstu einkenni kvefs koma fram getur þú dregið úr útbreiðslu veirunnar og minnkað alvarleika einkenna.
- Fyrirbyggjandi notkun: ColdZyme® má einnig nota fyrirbyggjandi, sérstaklega þegar þú veist að þú munt verða útsett(ur) fyrir kvefveirum, t.d. á ferðalögum eða á opinberum stöðum.
Húsráð til að bæta líðanina
Ef þér líður ekki vel geta sum húsráð hjálpað til við að draga úr einkennum án þess að of djúpt sé kafað í vísindin.
- Hunang: Skeið af hunangi getur dregið úr særindum í hálsi og hósta, sérstaklega ef hiti er ekki samfara hálsbólgunni¹⁴.
- Sítróna og engifer: Heitur drykkur með sítrónu og engifer getur styrkt ónæmiskerfið og létt á bólgnum hálskirtlum¹⁵.
- Heitir drykkir og súpur: Heitir vökvar og súpur geta létt á hálsbólgu, eyrnaverk og veitt huggun í veikindum16.
Með því að fylgja þessum ráðum má draga úr líkum á veikindum og auka líkur á að halda heilsu á kvef- og inflúensutímabilinu. Mundu að mikilvægt er að hlúa vel að þér og hlusta á líkamann.
Tilvísanir:
- Folkhälsomyndigheten. (2020). Handhygien. https://www.folkhalsomyndigheten.se/publicerat-material/publikationer/handhygien/ 2 3 4
- (2018). Vitaminer och mineraler. https://www.livsmedelsverket.se/livsmedel-och-innehall/naringsamne/vitaminer-och-mineraler 2
- Karolinska Institutet. (2015). Probiotika och hälsa. https://ki.se/forskning/probiotika-och-halsa 2
- 1177 Vårdguiden. (2021). Vätskebrist och uttorkning. https://www.1177.se/behandling–hjalpmedel/behandlingar-vid-sjukdomar/vatskebrist-och-uttorkning/ 2
- Sömnlaboratoriet, Uppsala Universitet. (2019). Sömn och hälsa. https://www.somnlab.se/somn-och-halsa 2 3 4
- Gymnastik- och idrottshögskolan (GIH). (2017). Fysisk aktivitet och immunförsvar. https://www.gih.se/forskning/fysisk-aktivitet-och-immunforsvar 2
- 1177 Vårdguiden. (2020). Träna vid sjukdom. https://www.1177.se/liv–halsa/traning-och-fysisk-aktivitet/trana-vid-sjukdom/ 2
- Stressforskningsinstitutet, Stockholms Universitet. (2016). Stresshantering och hälsa. https://www.stressforskning.su.se/om-oss/nyheter/stresshantering-och-h%C3%A4lsa-1.280981 2
- Folkhälsomyndigheten. (2019). Sociala relationer och hälsa. https://www.folkhalsomyndigheten.se/folkhalsorapportering-statistik/tolkad-rapportering/folkhalsans-utveckling/sociala-relationer/ 2
- Folkhälsomyndigheten. (2021). Vaccination mot influensa. https://www.folkhalsomyndigheten.se/smittskydd-beredskap/vaccinationer/vaccinationsprogram/influensa/ 2 3 4
- Smittskyddsläkarföreningen. (2020). Förhindra smittspridning i hemmet. https://www.slf.se/smittskyddslakarforeningen/ 2 3 4
- Arbetsmiljöverket. (2020). Rengöring och desinfektion i arbetsmiljön. https://www.av.se/inomhusmiljo/kemikalier/rengoring-och-desinfektion/ 2 3 4
- 1177 Vårdguiden. (2019). Halsont. https://www.1177.se/sjukdomar–besvar/ogon-oron-nasa-och-hals/hals/halsont/ 2
- (2021). Huskurer vid förkylning. https://www.apoteket.se/halsa-och-livsstil/hosta-forkylning/huskurer-mot-forkylning/ 2
- 1177 Vårdguiden. (2021). Råd vid förkylning. https://www.1177.se/behandling–hjalpmedel/behandlingar-vid-sjukdomar/rad-vid-forkylning/ 2