ColdZyme®
Hindrar að veiran nái að bindast
ColdZyme® er CE-merkt lækningatæki (CE 0477), lestu notkunarleiðbeiningar fyrir notkun. Lestu meira á coldzyme.is ColdZyme® verndar gegn orsökum kvefs og sýkingar í efri öndunarvegi. Heimildir: 1. Clarsund et al. (2017) A Randomized, Double-Blind. Placebo-Controlled Pilot Clinical Study on ColdZyme® Mouth Spray against Rhinovirus-Induced Common Cold. Open Journal of Respiratory Diseases, 7, 125-135. doi: 10.4236/ojrd. 201774013
ColdZyme® er munnúði sem meðhöndlar og dregur úr einkennum kvefs. ColdZyme® munnúði er einstakur, þar sem úðinn myndar strax varnarhjúp sem verndar þig gegn orsökum kvefsins, kvefveirunni.
ColdZyme® verkar á þrjá vegu:
Hægt er að nota ColdZyme® fyrir og meðan á sýkingu stendur fyrir fullorðna og börn frá 4 ára aldri.
ColdZyme® er CE-merkt lækningatæki,
ColdZyme® munnúði er einstakur vegna þess að hann vinnur gegn orsökum kvefs, sjálfri kvefveirunni. ColdZyme® er auðvelt í notkun og virkar samstundis með því að mynda verndarhjúp í munnholi og koki.
Verndarhjúpurinn dregur úr getu kvefveirunnar til að sýkja frumur þannig að líkaminn geti losað sig við þær á náttúrulegan hátt. ColdZyme® verndar gegn kvefveirum, dregur úr einkennum og getur stytt kveftímabilið ef notað frá fyrstu einkennum. ColdZyme® er til í 20 ml pakkningum.
Byrjaðu að nota ColdZyme® um leið og kvefeinkenna verður vart eða þú getur verið í hættu á að smitast af kvefveirunni.
Haltu áfram notkun á ColdZyme® þar til einkennin hverfa.
Hér að ofan má sjá dæmi um fyrstu einkenni kvefs
ColdZyme® er mjög auðvelt í notkun, sjá leiðbeiningarnar hér að neðan. Ef að þú vilt frekari upplýsingar lestu áfram.
1. Opnaðu munninn og beindu úðastútnum að kokinu.
2. Þrýstu dælunni niður og úðaðu tvisvar (einn skammtur) á tveggja klukkustunda fresti allt að 6 sinnum á sólarhring á meðan auknar líkur eru á kvefsmiti eða þar til einkennin hverfa.
ColdZyme® 20ml
Innihaldsefni:
Glýseról, vatn, trypsín úr þorski, etanól, kalsíumklóríð, trómetamól og mentól.
ColdZyme® er án sykurs og inniheldur engin rotvarnarefni, glúten eða mjólkursykur.
Umhirða og geymsla:
Geymið ColdZyme® við stofuhita, við lægri hita en 25°C.
Geymsluþol vörunnar eru 36 mánuðir frá framleiðsludegi.
Sjá fyrningardagsetningu á flöskunni eða á umbúðum.
Sama geymsluþol gildir fyrir opnaðar sem óopnaðar flöskur.
Á áttunda áratugnum tók íslenski vísindamaðurinn Jón Bragi Bjarnason prófessor eftir því að starfsfólk í fiskvinnslu var með óvenju heilbrigða og mjúka húð á höndum.
Þar sem fólkið starfaði við að hreinsa fisk hefði mátt halda að húðin á höndunum hlyti að vera sprungin og fleiðruð. Var eitthvað í fiskinum sem hafði verndandi áhrif?
Rannsóknarhópnum tókst að sýna fram á að í sumum kuldaaðlöguðum sjávarlífverum eru ensím með góða verndandi eiginleika. Þróunarvinnan leiddi svo smám saman til alþjóðlegs einkaleyfis á kuldaaðlagaða sjávarensíminu trypsíni. Ensímið er unnið sem hliðarafurð við þorskvinnslu og veldur því ekki álagi á vistkerfi sjávar.
Veirusýkingar í öndunarfærum, einnig þekkt sem kvef eru algengasti smitsjúkdómur mannkynsins. Margar gerðir veira valda kvefi en algengastar eru rhinoveirur.1
Meðgöngutími smitsjúkdóms er tíminn frá útsetningu smits þangað til einkenna verður vart. Meðgöngutíminn er breytilegur eftir tegund veiru, allt frá hálfum degi upp í viku og fer eftir tegund veirunnar.2
Algeng einkenni eru nefrennsli, stíflað nef og særindi í hálsi. Einkenni geta einnig verið vægur hósti og höfuðverkur ásamt hita. Venjulegt kvef varir yfirleitt yfir í færri en tíu daga og að meðaltali fær fólk kvef tvisvar til fimm sinnum á ári.3
Börn eru sá hópur sem fær oftast kvef eða 7 til 10 sinnum á ári3 - en tíðnin lækkar með hækkandi aldri.
1 Wat, Dennis. The common cold: a review of the literature, European Journal of Internal Medicine. 15 (2004): 79-88
2 Lessler, Justin et al. Incubation periods of acute respiratory viral infections: a systematic review,
The Lancet Infectious Diseases, Volume 9, Issue 5, 291-300.
3 Hull D, et al. Effects of creating a non-specific, virus-hostile environment in the nasopharynx on symptoms and duration of common cold. Acta Otorhinolaryngol Ital. 2007 Apr; 27(2): 73-7.
Eftirfarandi ráð geta dregið úr smithættu af völdum kvefs og annarra öndunarfærasjúkdóma:
Það er mikið til af mýtum um hvernig við fáum kvef og hvernig við eigum að forðast að fá kvef, hér verður farið yfir eitthvað af þessum mýtum og hvort að það sé einhver sannleikur á bak við þær.
Kvef og flensa er það sama
Sjúkdómarnir eru af völdum mismunandi sýkla. Á meðan flensa orsakast af inflúensuveirum þá eru yfir 200 mismunandi veirur sem geta orsakað kvef.
Kvef byrjar oft með vægum einkennum sem stigmagnast á meðan flensa kemur skyndilega og oft með hita og beinverkjum.
Þú færð kvef ef þú ert með blautt hár
Blautt hár veldur ekki kvefi, kvef er veirusýking sem orsakast af kvefveirum. Hinsvegar getur kuldi gert veiklað ónæmiskerfi enn veikara. Blautt hár í köldu veðri getur valdið lækkun á líkamshita sem getur haft neikvæð áhrif á veikt ónæmiskerfi og því er best að forðast að fara út í kalt veður með blautt hár.
Haltu fyrir munninn þegar þú hóstar
Margir telja það enn kurteisi að halda fyrir munninn með hendinni þegar það hóstar og hnerrað. Þegar hóstað er í höndina fer óheyrilegt magn af veiru í lófann sem svo berst á hluti sem viðkomandi snertir og eykur þannig líkur á að aðrir smitist. Þess vegna er mælt með að hósta og hnerra í olnbogabótina.
C-vítamín getur læknað kvef
Það virðist sem dagleg neysla C-vítamíns hafi engin áhrif á að smitast af kvefi, þó getur það haft jákvæð áhrif á að stytta kveftímabilið sé það tekið reglulega. Stórir skammtar C-vítamíns þegar kvefeinkenni eru komin fram hafa ekki sýnt fram á áhrif á lengd eða alvarleika kvefs.
Við hvaða sjúkdómum er hægt að nota ColdZyme®?
ColdZyme® munnúði er ætlað til notkunar við kvefi annaðhvort fyrirbyggjandi með því að draga úr hættu á smiti eða til að stytta kveftímabilið þegar það er notað frá upphafi einkenna. ColdZyme® dregur úr einkennum kvefs.
Hvernig á að nota ColdZyme®?
Beinið stútnum að kokinu og úðið tvisvar (einn skammtur) á tveggja tíma fresti til þess að draga úr líkum á smiti eða þar til einkenni eru horfin.
Getur hver sem er notað ColdZyme®?
ColdZyme® munnúði er fyrir fullorðna og börn frá 4 ára aldri, sé ekki um að ræða ofurnæmi/ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna.
Hvernig verkar ColdZyme® ?
ColdZyme® munnúði verkar með því að mynda verndarhjúp í munnholi og koki. Verndarhjúpurinn dregur úr getu veirunnar til þess að bindast frumunum í munnslímhúðinni og valda veikindum.
Er ColdZyme® lyf?
Nei. ColdZyme® munnúði er CE-merkt lækningatæki sem virkar á þann hátt að hann myndar tímabundinn, staðbundinn verndarhjúp á yfirborði slímhimnunnar í munnholi og koki. Ólíkt lyfjum hefur það engin lyfjafræðileg, efnaskipta- eða ónæmisfræðileg áhrif.
Mega konur nota ColdZyme® á meðgöngu eða við brjóstagjöf?
Engar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun ColdZyme® á meðgöngu og við brjóstgjöf. Þess vegna skal ávallt leita ráðgjafar hjá lækni fyrir notkun.
Hafðu samband, við aðstoðum þig gjarnan.
Við viljum tryggja öryggi þitt, ef þú hefur ekki fundið svar við þinni spurningu, vinsamlegast sendu okkur skilaboð með því að velja flokk hér að neðan.